Andvari 2026 kominn út
Andvari, rit Hins íslenska þjóðvinafélags, er kominn út. Að þessu sinni er engin löng ævisaga sem höfuðgrein ritsins og þar af leiðandi hefur kápan breyst lítillega. Sem fyrr er Andvari fullur af menningarlegu og þar á meðal ævisagnalegu efni. Fræðigreinar á sviði sagnfræði, bókmennta og málfræði eru mest áberandi en einnig má í heftinu finna þrjár textaútgáfur. Ritstjóri Andvara er Ármann Jakobsson. Þetta er 151. árgangur Andvara en hinn 68. í nýjum flokki. Ritið er að þessu sinni 278 síður. Aðsetur ritsins er nú hjá Háskólaútgáfunni.
Efni ritsins er: Aðalheiður Guðmundsdóttir: Hvenær er saga fullsögð? Um Sögu af fjórum kaupmönnum í þrenns konar búningi — Brynja Þorgeirsdóttir: Hugarfylgsni Egils — Arngrímur Vídalín: Ráðgátan um Nikulás Bergsson: Athugun á höfundi Leiðarvísis — Lára Magnúsardóttir: Viði eða víði vaxið?: Íslendingabók og íslensk stjórnskipan — Agnes S. Arnórsdóttir: Minni um sjóslys í íslenskum annálum — Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir: „Dæmið rétta dóma“: Um yfirréttinn og réttarfarið á Íslandi í bréfum til Landsnefndarinnar fyrri — Katelin Parsons: Höfundur í óskilum: Anna Þórdís Eggertsdóttir Eldon (Gerður) og þátttaka íslenskra kvenna í blaðamenningu fyrir 1925 — Daisy Neijmann: Tilbrigði við stef: Íslenskar smásögur um hernámið — Brynjarr Per Mendoza: Gyrðir Elíasson og póetík augnabliksins — Óskar Árni Óskarsson: Hin fíngerða sjón: Brot úr húsasögu Þórbergs Þórðarsonar — Valgerður Stefánsdóttir og Rannveig Sverrisdóttir: Íslenskt táknmál: Regluverk og raunveruleiki — Guðbjörg Vilhjálmsdóttir og Torfi H. Tulinius: Að eltast við örnefni: Um Búrfellin og útlínur landnámsaldarbæja í landslaginu — Gauti Páll Jónsson: Einhvers staðar úti í horni í veröldinni: Bréfaskrif Helgu Arnbjarnardóttur til Íslands frá Kanada snemma á 20. öld — Þórunn Sigurðardóttir: „Veleðla háæruverðigum og hálærðum herra biskupinum […]“: Heillaósk Jóns Ólafssonar úr Grunnavík til Gísla biskups Magnússonar — Illugi Jökulsson: Kaflinn sem hvarf — Vésteinn Ólason: Hetjukviða og rómansa, seinni hluti.