Fréttir

21.10.2025

Andvari og Almanak Þjóðvinafélagsins 150 ára

Hið íslenska þjóðvinafélag varð 150 ára árið 2021 og var þess minnst með atburði fyrir börn í Alþingishúsinu og veglegri ráðstefnu í Grósku. Frá þessum atburðum hefur áður verið sagt. En stjórninni þótti mikilvægt að minnast fleiri afmæla. Félagið hefur gefið út tvö rit lengst af starfstímanum. Því var fagnað 10. apríl 2025 að 150 ár voru liðin frá því að þau komu fyrst út.

Annað ritið er tímaritið Andvari, sem kom fyrst út í Kaupmannahöfn 1874. Í fyrstu ritnefnd voru fimm þekktir menn, Björn Jónsson, Björn Magnússon Ólsen, Eiríkur Jónsson, Jón Sigurðsson og Sigurður L. Jónasson. Jón Sigurðsson sá um Almanakið í fyrstu og samdi árbókina sem hefur að geyma ýmsan fróðleik um árið á undan. 

Félagar í Hinu íslenska þjóðvinafélagi eru kjörnir þingmenn en fleiri gestum var boðið til fagnaðarins, m.a. stjórn félagsins. Hlé gert á þingfundi og boðið var upp á kaffi og kökur í Skála. Forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, bauð gesti velkomna, forseti félagsins sagði stuttlega frá félaginu, Ármann Jakobsson, ritstjóri Andvara, sagði frá tímaritinu og Arnór Gunnar Gunnarsson, umsjónarmaður Almanaksins og höfundur Árbókarinnar, gerði grein fyrir því riti. Kaffisamsætið þótti takast vel og sá skrifstofa Alþingis um veitingarnar.

Thjodv.uppfaerd490356375_673996798350858_1100942900602760485_n490464877_673996848350853_8668773097376998529_n